Minnkum kolefnissporið

Minnkum kolefnissporið

Sérhæfum okkur í að skipta út F-gösum (Freon) í kælikerfum og setja inn nýja kælimiðla í staðinn

LAUSNIN ER TIL:

Hafðu samband við Freyr Friðriksson í síma 864 0305 og saman finnum við út hvaða lausn hentar þér.

 

KAPP_minnkadu_kolefnissporid_Co2_Ammoniak_Rafmagn

Við sérhæfum okkur í öllum geirum matvælaiðnaðarinns:

  • Sjávarútvegur
  • Matvinnslustaðir
  • Veitingahús
  • Smásala
  • Landbúnaður
  • Flutningageirinn
  • og bara fyrir alla þá sem þurfa að kæla eða frysta matvæli

Hvers vegna að skipta út kælimiðlum?

Flestir kælimiðlar eru knúnir áfram af einhverri tegund af F-gasi en þau eru skaðleg andrúmsloftinu og hafa mjög háan hlýnunarmáttsstuðull. Eftir því sem stuðullinn er hærri þeim mun meiri áhrif hefur gasið á hlýnun jarðar.
  • Algengasta F-gasið í matvælaiðnaði og verslunum er R-404A (freon).
  • R-404A er 3.900 x verra en Co2 koltvísýringur.
  • Það tekur R-404A yfir 10.000 ár að eyðast úr andrúmsloftinu.
  • Við skiptum því út fyrir Ammóníak, CO2 eða notum hliðarkælingu.

F-gös eru ástæða fyrir hlýnun jarðar

F-gös eru samheiti yfir flúoraðar gróðurhúsalofttegundir, stundum kallað freon efni en þau eru ein af aðalástæðum fyrir hlýnun jarðar.

F-gös eru mörg hver öflugar gróðurhúsalofttegundir og í ljósi þess hafa verið settar reglugerðir til að draga úr áhrifum á hlýnun jarðar vegna losunar þessara efna út í andrúmsloftið.

Áhrif kælimiðla á hnattræna hlýnun er oft mælt í GWP*

  • R-404A (freon) er með GWP upp á 3.900
  • Ammóníak.       er með GWP upp á 0
  • CO2                   er með GWP upp á 1
  • Hliðarkæling getur minnkað áhrifin um allt að 99%

* GWP er Global Warming Potential eða hlýnunarmáttsstuðull, sem er geta gróðurhúsalofttegundar til að valda loftslagshlýnun samanborið við mátt CO2.

KAPP_minnkadu_kolefnissorid_sjavarutvegur

Í sjávarútvegi eru við aðallega að nota tvær aðferðir til að minnka notkun á freoni eða jafnvel að skipta því alveg út.

AMMÓNÍAK:

Við skiptum öllu freoni út fyrir ammóníak sem er með GWP stuðul upp á O. Sem sagt alveg 100% umhverfisvænt.

Hér er linkur á dæmi frá Guðrúnu Þorkelsdóttur SU 211.

Hér er linkur á dæmi frá Huginn VE 55.

HLIÐARKÆLING:

Hér er freonið minnkað um allt að 99% og einangrað í litlu lokuðu kerfi.

Við hliðina á því setjum við upp annað umhverfisvænu kerfi, oft kallað seconderi kerfi.

Hér er linkur á dæmi frá Tjaldinum SH 270. 

 

KAPP_minnkadu_kolefnissporid_matvaelaidnadur

 

Í matvælaiðnaði eru við aðallega að skipta út freoni fyrir Co2 koltvísýring

Co2:

Hér skiptum við freoni fyrir út fyrir Co2.

Co2 er með GWP stuðul upp á 1 meðan freonið er með stuðul milli 2-10þús.

Erum að sinna viðskiptavinum á öllum sviðum matvælaiðnaðar. T.d. kjötvinnslur, smásölur, heildverslanir og veitingastaðir svo eitthvað sé nefnt.

Hér er linkur á dæmi frá kjötiðnaðarstöð SS á Hvolsvelli.

 

KAPP_minnkadu_kolefnissporid_co2_ammoniak_rafmagn

 

Í flutningageiranum eru við aðallega að skipta um kælikerfi. Setjum nýtt kerfi með Co2 eða rafmagni eftir aðstæðum.

 

Lausnin er því til í flestum tilfellum

Hafðu samband við okkur og við finnum út saman hvaða leið hentar þér.

Hér er linkur á dæmi umhverfisvænni kælikerfi.

Fleiri fréttir

  • KAPP Skaginn ehf kaupir eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi

    KAPP Skaginn ehf kaupir eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi

  • KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2024

    KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2024

  • Fjör á KAPP básnum á IceFish í Fífunni

    Fjör á KAPP básnum á IceFish í Fífunni

  • Thor Landeldi kaupir GMT frá Innovasea

    Thor Landeldi kaupir GMT frá Innovasea

  • Ólafur Karl ráðinn sem aðstoðarforstjóri KAPP

    Ólafur Karl ráðinn sem aðstoðarforstjóri KAPP

  • KAPP skrifar undir samning við Atlas Premium Seafood

    KAPP skrifar undir samning við Atlas Premium Seafood

  • Saltsprautuvel-RAF-S900-visir-hf

    Vísir hf. fær afhenta nýja saltsprautuvél frá KAPP

  • Ny-Fiskur-CO2-Krapavel-OptimICE

    Ný-Fiskur fær fyrsta eintakið af nýrri CO2 krapavélina frá KAPP

  • Hágæða hnífabrýni fyrir hringhnífa

    Hágæða hnífabrýni fyrir hringhnífa

  • Carrier kælikerfi fyrir sendibíla Mata ehf

    Carrier kælikerfi fyrir sendibíla Mata ehf

  • Rafvirkjanemar í heimsókn hjá KAPP

    Rafvirkjanemar í heimsókn hjá KAPP

  • Samsettir gámar hjá ESJU Gæðafæði

    Samsettir gámar hjá ESJU Gæðafæði