KAPP sinnir allri almennri þjónustu á frysti- og kælitækjum, til sjós og lands, bæði á verkstæði okkar og hjá viðskiptavinum.
CO2 eru eitt af sérsviðum KAPP. Þarfagreining, nýsmíði, uppsetning, eftirlit og viðhald.
CO2 kælikerfið er 100% vistvænt. Það er hannað þannig að kolefnissporið sé í algjöru lágmarki, uppsetning á því sé einföld og viðhald verði lítið. Rekstrarkostnaður kælikerfisins er einstaklega hagkvæmur.
Meðfylgjandi myndir er frá uppsetningu á vistvæna CO2 kælikerfinu hjá Sláturfélagi Suðurlands. Kælikerfið er frá SCM Frigo var sett upp hjá Kjötiðnaðarstöð SS á Hvolsvelli sem er sú stærsta og fullkomnasta á Íslandi en þar eru m.a. framleiddar hinar heimsfrægu SS pylsur og 1944 réttirnir.