Matvælaiðnaður

Við bjóðum upp á nýstárlegar hágæða vörur- og lausnir og veitum framúrskarandi þjónustu fyrir matvælaiðnaðinn þar sem mikil áhersla er lögð á sjálfbærni, skilvirkni og gæði. 

6.png__PID:041535a8-3bef-4d6a-95db-4e024a458815

Þjónusta

Valdar vörur

Aðrar vörur

Heildarlausnir

Við tökum að okkur bæði stór og smá verkefni. Meðal sérfræðinga okkar eru reynslumiklir tæknifræðingar, verkfræðingar og iðnfræðingar ásamt öflugum iðnaðarmönnum. Við erum með áratugareynslu í heildarlausnum eins og hönnun og uppsetningu á frysti,- & kælikerfum, færiböndum og stjórnkerfum. Við bjóðum upp á fyrsta flokks búnað og framúrskarandi þjónustu. Okkar lausnir hafa sannað sig fyrir að vera áreiðanlegar og afkastamiklar. Hjá okkur finnurðu allt til þess að gera hugmyndina þína að veruleika. 

Freezing and cooling system.png__PID:92beea5b-b246-47b3-9f5a-c9e2239a5f04

Stjórnkerfi

Í yfir tvo áratugi höfum við hannað, forritað og sett upp stjórnkerfi fyrir margskonar búnað. Okkar stjórnkerfi eru hönnuð nákvæmlega eftir þörfum viðskiptavina okkar. Við getum hannað stjórnkerfi í öllum stærðum og gerðum, allt frá litlum iðnstýringum upp í stór stjórnkerfi eins og SCADA kerfi. Markmiðið er alltaf  að auka hagkvæmni og sjálfbærni. 

Þjónusta

Hjá KAPP færðu alltaf fyrsta flokks þjónustu. Við reynum alltaf að koma til móts við þig á einhvern hátt því það mikilvægasta fyrir okkur er að þú gangi sáttur frá borði. Einnig bjóðum við upp á þjónustu allan sólarhringinn.