KAPP á Skrúfudeginum 2026
Laugardaginn 21. mars verður Skrúfudagurinn 2026 haldinn í húsnæði Tækniskólans við Háteigsveg frá kl. 13:00 til 16:00.
KAPP verður meðal þeirra fyrirtækja sem kynna starfsemi sína á viðburðinum og verður staðsett á 2. hæð í aðalbyggingu.
Skrúfudagurinn er frábært tækifæri til að sýna fjölbreytt og spennandi störf í iðnaði og tækni, hitta gesti og kynna það sem KAPP hefur upp á að bjóða.
Skrúfudagurinn er frábært tækifæri til að sýna fjölbreytt og spennandi störf í iðnaði og tækni, hitta gesti og kynna það sem KAPP hefur upp á að bjóða.
Á dagskránni verður meðal annars fyrirtækjakynningar, sýningar, hermar og ýmis spennandi atriði fyrir gesti á öllum aldri. Einnig verður boðið upp á veisluhlaðborð á 4. hæð gegn gjaldi.
Við hvetjum alla til að kíkja við og taka þátt í skemmtilegum degi í Tækniskólanum.
