Freyr Friðriksson kjörinn í stjórn Samtaka iðnaðarins

Freyr Friðriksson kjörinn í stjórn Samtaka iðnaðarins

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í dag var Freyr Friðriksson, eigandi og stjórnarformaður KAPP, kjörinn í stjórn samtakanna með 66% atkvæða. Kosningaþátttaka var 91,84%, sem undirstrikar sterkan áhuga aðildarfyrirtækja á stefnu og framtíðarsýn samtakanna.

Á fundinum var jafnframt tilkynnt að Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins, hafi verið kjörinn formaður Samtaka iðnaðarins til tveggja ára með 93,87% atkvæða.

„Ég þakka kærlega fyrir traustið. Samtök iðnaðarins gegna lykilhlutverki í hagsmunagæslu og í að móta skýra sýn fyrir íslenskan iðnað. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum í þeirri vinnu,“ segir Freyr.

Freyr hefur starfað í íslenskum iðnaði í nær þrjá áratugi, bæði sem frumkvöðull og stjórnandi. Hann stofnaði KAPP ásamt eiginkonu sinni og hefur byggt upp alþjóðlega samstæðu með starfsemi á Íslandi, í Noregi og í Bandaríkjunum, með yfir 100 starfsmenn og fjölbreyttan viðskiptavinahóp.

Í framboði sínu lagði Freyr áherslu á að:

  • efla samkeppnishæfni íslensks iðnaðar og skapa skilyrði fyrir varanlega verðmætasköpun,
  • tala skýrt gagnvart stjórnvöldum um aðhald og ábyrgð í opinberum rekstri,
  • tryggja að regluverk og skattar styðji við vöxt og nýsköpun,
  • og að rödd iðnaðarins heyrist skýrt í umræðu um framtíð vinnumarkaðar, tækniþróun og sjálfbærni.

Ný stjórn Samtaka iðnaðarins (almenn stjórnarsæti):
Bergþóra Halldórsdóttir (Borealis Data Center), Freyr Friðriksson (KAPP), Jón Eðvald Malmquist (Eykt), Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir (Nói Siríus), Sigurjón Rúnar Rafnsson (Kaupfélag Skagfirðinga) og Viðar Erlingsson (EVP & CDO hjá JBT Marel).
Aðrir í stjórn eru: Hjörleifur Stefánsson (Nesraf rafverktakar), Karl Andreassen (Ístak) og Sigrún Helgadóttir (Norðurál).

Fleiri fréttir

  • Valþór Hermannsson, þróunarstjóri KAPP, Sölvi Sturluson Snæfeld, rekstrarstjóri fiskeldis, og Ólafur Karl Sigurðarson, forstjóri félagsins.

    KAPP styrkir þjónustu við fiskeldi

  • Freyr stjórnarformaður og Ólafur Karl forstjóri KAPP

    Freyr stjórnarformaður og Ólafur Karl forstjóri KAPP

  • Margeir ráðinn fjármálastjóri KAPP

    Margeir ráðinn fjármálastjóri KAPP

  • KAPP er framúrskarandi fyrirtæki

    KAPP er framúrskarandi fyrirtæki

  • KAPP kaupir Kami Tech Inc. í Seattle

    KAPP kaupir Kami Tech Inc. í Seattle

  • KAPP hlaut umverfisframtak ársins hjá SA

    KAPP hlaut umverfisframtak ársins hjá SA

  • KAPP Skaginn ehf kaupir eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi

    KAPP Skaginn ehf kaupir eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi

  • KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2024

    KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2024

  • Fjör á KAPP básnum á IceFish í Fífunni

    Fjör á KAPP básnum á IceFish í Fífunni

  • Thor Landeldi kaupir GMT frá Innovasea

    Thor Landeldi kaupir GMT frá Innovasea

  • Ólafur Karl ráðinn sem aðstoðarforstjóri KAPP

    Ólafur Karl ráðinn sem aðstoðarforstjóri KAPP

  • KAPP skrifar undir samning við Atlas Premium Seafood

    KAPP skrifar undir samning við Atlas Premium Seafood