Skötuveisla KAPP sló öll met
Árleg skötuveisla KAPP var haldin föstudaginn 8.des. 2023 í húsnæði KAPP að Turnahvarfi í Kópavogi.
Metþátttaka var í skötuboðinu í ár.
Viðskiptavinum var boðið upp á vel kæsta vestfirska skötu og gómsætan saltfiski toppað með alvöru hamsatólg og ís í eftirrétt.
Að þessu sinni var met þátttaka þegar um 470 matarskammtar voru bornir fram.
Mikil stemning var á staðnum og áberandi hve létt var yfir gestum. Alvöru harmonikkutónlist var leikin af reynsluboltunum Helga Hermannssyni og Friðriki Inga Óskarssyni við góðar undirtektir. Gestir voru svo leystir út með fötu fullri af eðalsíld.
Reynsluboltarnir Helgi og Friðrik Ingi.
Mikil vinna er að halda svona stóra veislun og það væri ekki hægt nema með úrvals starfsfólki. Á föstudeginum tóku allir starfsmenn KAPP höndum saman og lögðu metnað sinn í undirbúning veislunnar og buðu svo gesti velkomna þegar þeir mættu.
Freyr Friðriksson, forstjóri KAPP, þakkar starfsfólki fyrir undirbúning veislunnar rétt áður en gestir mæta í hús.
KAPP þakkar öllum þeim fjölmörgu viðskiptavinum sem mættu í veislun og vonast til að sjá þá aftur á næsta ári.

Eins og undanfarin ár var hlaðborð þar sem hver og einn valdi sinn rétt.
Strax um kl. 11.30 var fjöldi fólks mætt.
Yfirlitsmynd yfir hluta af húsnæðinu.
Freyr forstjóri með Helga og Friðriki Inga.
Allir starfsmenn KAPP lögðu hönd á plóginn við undirbúninginn.
Valþór (Tóti) og Heimir buðu gesti velkomna og Júlíus afhenti síldargjöfina.
Vel kæst vestfirsk skata ásamt saltfiski, kartöflum, hamsatólg og rúgbrauði.
Veislan er halding í vinnslusal KAPP í Turnahvarfi Kópavogi.
Viðskiptavinir KAPP fjölmenntu og nutu góðra veitinga.
Alvöru. Vel kæst skata með hamsatólg.
Veislan stóð í tvo tíma frá kl. 11:30 til 13:30.
KAPP þakkar öllu starfsfólki og samstarfsaðilum fyrir aðstoðina við skötuveisluna. Skatan kom frá Fiskikónginum. Kokkurinn var Kristófer Ásmundsson áður Gallery fisk og hans fólk, borð og bekkir komu frá Seglagerðinni Ægi, diskar og hnífapör frá Valur veisluhöld, keilur komu frá Ísmar, pallur fyrir sviðið frá Luxor, eftirrétturinn var ís frá Kjörís og síldarföturnar voru frá Norðanfiski svo eitthvað sé nefnt.