Nýr Harðbakur EA3 með Optim-ICE® kælingu frá KAPP
Nýr togari Útgerðarfélags Akureyrar, Harðbakur EA 3, kom til hafar á dögunu.
Hann var smíðaður hjá Vard-Aukra-skipasmíðastöðinni í Noregi og mun Slippurinn Akureyri sjá um uppsetningu á vinnslubúnaði í skipið.
Gert er ráð fyrir að Harðbakur muni hefja veiðar fljótlega á næsta ári.
Optim-ICE® kælibúnaður frá KAPP sem er í Harðbaki er BP-130 krapavél og T-3000 forðatankur.
Kælibúnaðurinn hefur á undanförnum tuttugu árum sannað sig sem sérlega góð kæling fyrir útgerðir og fiskvinnslur.
Optim-ICE® er fljótandi ís sem leysir af hólmi hefðbundinn flöguís og er framleiddur um borð í skipinu. Kælingin umlykur fiskinn og heldur honum í kringum 0 °C allan fiskveiðitúrinn, í löndun, í flutningi þvert í kringum landið, til annarra landa og allt til endanlegs viðskiptavinar.
Kælikeðjan rofnar því aldrei með Optim-ICE® kælingu.
Sjá nánar í fréttum: