OptimICE® Krapagámar

OptimICE® Krapagámar eru sérstaklega hannaðir fyrir OptimICE® ískrapakerfið. Sérsmíðaðir gámar sem er auðvelt að flytja. Heildarlausn fyrir þá sem eru að leita að hágæða kælikerfi fyrir matvæli og einfalda matvælavinnslu um leið. Góð lausn fyrir þá sem hafa lítið pláss eða þar sem starfsemi er árstíðabundin eða fer fram á nokkrum stöðum. 

  • Sérhannaðir fyrir hvern og einn

  • Auðvelt að flytja til

  • Góð lausn til að auka gæði

  • Einfaldar vinnsluna

Hvað er í gámunum?

Gámarnir koma fullbúnir, einungis þarf að tengja við rafmagn, vatn og frárennsli. Þeir eru sérhannaðir fyrir hvern og einn og því er mismunandi hvaða OptimICE® kælibúnaður er í hverjum gámi.

  • OptimICE® Krapavél

    Hraðkælikerfi sem framleiðir ískrapa úr sjóvatni eða saltvatni um borð í skipinu eða á landi.

  • OptimICE® Forkælir

    Forkælirinn tryggir að hitastigið vatnsins helst í 0° á meðan framleiðslu stendur.

  • OptimICE® Tankur

    Tankarnir tryggja að hægt sé að dæla miklu magni af OptimICE® krapaísnum á stuttum tíma.

  • Pækilblöndunarkerfi

Þjónusta

Hjá KAPP færðu alltaf fyrsta flokks þjónustu. Við reynum alltaf að koma til móts við þig á einhvern hátt því það mikilvægasta fyrir okkur er að þú gangi sáttur frá borði. Einnig bjóðum við upp á þjónustu allan sólarhringinn. 

Ná í bækling hér:

Þar sem kælikeðjan rofnar aldrei

OptimICE® er ískrapakerfi sem kemur í stað fyrir hefðbundinn flöguís. Krapaísinn er framleiddur úr sjóvatni eða saltvatni bæði um borð og á landi. Krapaísinn umlykur fiskinn og kælir hann fljótt niður fyrir 0°C og heldur hitastiginu í kringum -0.5°C. Á meðan veiðiferðin stendur, við löndun, við flutning til framleiðslu og til neytanda helst fiskurinn við sama hitastig án þess að frjósa sem tryggir hámarksgæði. Þess vegna rofnar kælikeðjan aldrei með OptimICE® krapakerfinu. 

Sjá fleiri OptimICE® vörur

Leyfðu okkur að hjálpa þér að hámarka þín gæði

OptimICE® kerfin koma í mismunandi gerðum og geta verið aðlöguð eftir þínum þörfum. Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar til þess að finna bestu lausnina fyrir hverja starfsemi.

Tengiliðir