Kristinn útskrifast úr Véltækniskólanum

Kristinn útskrifast úr Véltækniskólanum

Við óskum Kristni Jóni Arnarsyni til hamingju með útskriftina úr Véltækniskólanum en hann var rétt í þessu að útskrifast sem vélfræðingur.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Kristinn mikla reynslu af alls konar vélavinnu enda er hans helsta áhugamál snjósleðamennska, bílaviðgerðir og starfið í Hjálparsveit Skáta í Kópavogi.

Kristinn, sem á ættir sínar að rekja á Rif á Snæfellsnesi, mun útskrifast með Sveinspróf á næsta ári. Hann hefur verið í starfsnámi hjá KAPP ehf og er Freyr Friðriksson hans meistari. KAPP hefur á undanförnum árum verið með nema í starfsþjálfun bæði í vélvirkjun og rennismíði. Í dag eru fimm nemar hjá KAPP.

Framtíðin er björt hjá þessum kraftmikla stúdent sem hefur með náminu í Véltækniskólanum einnig verið í rafvirkjun í Tækniskólanum og ætti að útskrifast sem rafvirki á næsta ári.

 

 

 

Fleiri fréttir

  • Kaflaskil hjá KAPP eftir áratuga þjónustu við bílvélar

    Kaflaskil hjá KAPP eftir áratuga þjónustu við bílvélar

  • KAPP á Skrúfudeginum 2026

    KAPP á Skrúfudeginum 2026

  • Freyr Friðriksson kjörinn í stjórn Samtaka iðnaðarins

    Freyr Friðriksson kjörinn í stjórn Samtaka iðnaðarins

  • Valþór Hermannsson, þróunarstjóri KAPP, Sölvi Sturluson Snæfeld, rekstrarstjóri fiskeldis, og Ólafur Karl Sigurðarson, forstjóri félagsins.

    KAPP styrkir þjónustu við fiskeldi

  • Freyr stjórnarformaður og Ólafur Karl forstjóri KAPP

    Freyr stjórnarformaður og Ólafur Karl forstjóri KAPP

  • Margeir ráðinn fjármálastjóri KAPP

    Margeir ráðinn fjármálastjóri KAPP

  • KAPP er framúrskarandi fyrirtæki

    KAPP er framúrskarandi fyrirtæki

  • KAPP kaupir Kami Tech Inc. í Seattle

    KAPP kaupir Kami Tech Inc. í Seattle

  • KAPP hlaut umverfisframtak ársins hjá SA

    KAPP hlaut umverfisframtak ársins hjá SA

  • KAPP Skaginn ehf kaupir eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi

    KAPP Skaginn ehf kaupir eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi

  • KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2024

    KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2024

  • Fjör á KAPP básnum á IceFish í Fífunni

    Fjör á KAPP básnum á IceFish í Fífunni