Kaflaskil hjá KAPP eftir áratuga þjónustu við bílvélar

Kaflaskil hjá KAPP eftir áratuga þjónustu við bílvélar

KAPP hefur lokað þeim kafla í sögu fyrirtækisins sem snýr að móttöku og viðgerðum á bílvélahlutum, en heldur áfram að byggja á langri sögu með áherslu á þjónustu, tækni og lausnir fyrir íslenskan og alþjóðlegan iðnað. 

KAPP hefur ákveðið að loka þeim kafla í sögu fyrirtækisins sem snýr að móttöku og viðgerðum á bílvélahlutum. Frá og með 1. maí 2026 hefur móttöku og viðgerðum á heddum, blokkum, sveifarásum, knastásum og sambærilegum hlutum verið hætt. 

Þetta eru ákveðin kaflaskil í langri sögu KAPP. Rætur fyrirtækisins ná aftur til ársins 1929 þegar fyrirtækið Egill Vilhjálmsson hf., bifreiðaverkstæði og varahlutaverslun, var stofnað. Sú starfsemi þróaðist í gegnum áratugina og varð síðar hluti af því fyrirtæki sem KAPP er í dag, öflugu íslensku tæknifyrirtæki sem sinnir kæliþjónustu, vélasmíði, tækniþjónustu og lausnum fyrir sjávarútveg, fiskeldi, matvælaiðnað og annan iðnað. KAPP á uppruna sinn að rekja til vélaverkstæðis Egils Vilhjálmssonar hf sem stofnað var árið 1929. Síðan þá hefur fyrirtækið orðið brautryðjandi í kælitækni og þjónustu. Okkar markmið er alltaf að bjóða upp framúrskarandi vörur og lausnir ásamt því að veita fyrsta flokks þjónustu.

Í gegnum árin hefur bílvélaverkstæði KAPP þjónustað fjölda einstaklinga, verkstæða og fyrirtækja um allt land. Við erum þakklát fyrir það traust sem viðskiptavinir hafa sýnt okkur í gegnum áratugina og viljum færa þeim bestu þakkir fyrir viðskiptin og samstarfið. 


Með þessu hyggst KAPP skerpa á meginstarfsemi sinni og halda áfram að byggja á sinni löngu sögu með áherslu á þjónustu, tækni og lausnir fyrir sjávarútveg, fiskeldi, matvælaiðnað og annan iðnað. 

 

Fleiri fréttir

  • KAPP á Skrúfudeginum 2026

    KAPP á Skrúfudeginum 2026

  • Freyr Friðriksson kjörinn í stjórn Samtaka iðnaðarins

    Freyr Friðriksson kjörinn í stjórn Samtaka iðnaðarins

  • Valþór Hermannsson, þróunarstjóri KAPP, Sölvi Sturluson Snæfeld, rekstrarstjóri fiskeldis, og Ólafur Karl Sigurðarson, forstjóri félagsins.

    KAPP styrkir þjónustu við fiskeldi

  • Freyr stjórnarformaður og Ólafur Karl forstjóri KAPP

    Freyr stjórnarformaður og Ólafur Karl forstjóri KAPP

  • Margeir ráðinn fjármálastjóri KAPP

    Margeir ráðinn fjármálastjóri KAPP

  • KAPP er framúrskarandi fyrirtæki

    KAPP er framúrskarandi fyrirtæki

  • KAPP kaupir Kami Tech Inc. í Seattle

    KAPP kaupir Kami Tech Inc. í Seattle

  • KAPP hlaut umverfisframtak ársins hjá SA

    KAPP hlaut umverfisframtak ársins hjá SA

  • KAPP Skaginn ehf kaupir eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi

    KAPP Skaginn ehf kaupir eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi

  • KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2024

    KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2024

  • Fjör á KAPP básnum á IceFish í Fífunni

    Fjör á KAPP básnum á IceFish í Fífunni

  • Thor Landeldi kaupir GMT frá Innovasea

    Thor Landeldi kaupir GMT frá Innovasea