Freyr stjórnarformaður og Ólafur Karl forstjóri KAPP

Freyr stjórnarformaður og Ólafur Karl forstjóri KAPP

Freyr Friðriksson stofnandi og eigandi KAPP ehf hefur ákveðið að hætta sem forstjóri félagsins og verður stjórnarformaður þess. Ólafur Karl Sigurðarson, sem gegnt hefur stöðu aðstoðarforstjóra KAPP, síðastliðið rúmt ár, tekur við sem forstjóri.

KAPP er íslenskt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kæliþjónustu, framleiðslu, sölu og þjónustu á tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi, kjúklingaframleiðslu, smávöruverslanir og annan iðnað.

Freyr stofnaði KAPP ásamt eiginkonu sinni Elfu Hrönn Valdimarsdóttur fyrir 27 árum en félagið hefur vaxið gríðarlega á þeim tíma. Félagið keypti fyrir nokkrum árum KAMI Tech Inc. í Seattle í Bandaríkjunum og hefur síðan tekið til við framleiðslu á KAPP búnaði þar í landi. Jafnframt hefur KAPP byggt upp öflugt sölu- og markaðsstarf á alþjóðlegum markaði og sést nú þegar árangur af þeirri uppbyggingu. Á sama tíma keypti KAPP allar eignir og einkaleyfi úr þrotabúi Skagans 3X og hefur endurreist starfsemi fyrirtækisins undir merkjum KAPP. Með þessum kaupum styrkti félagið stöðu sína verulega á sviði hátæknilausna fyrir matvælaiðnað og bætir við sig þekkingu og vörum sem falla vel að núverandi starfsemi.

Freyr Friðriksson, stjórnarformaður KAPP.

 

Freyr Friðriksson, stjórnarformaður KAPP.

"Þetta hefur verið mikið ævintýri. Ég stofnaði KAPP með tvær hendur tómar fyrir 27 árum og þá aðeins 23 ára gamall. Ég er ekki hættur en fylgist nú með rekstrinum og hef góða yfirsýn yfir allt sviðið sem stjórnarformaður. Ólafur Karl tekur nú við stjórnartaumunum sem forstjóri og ég treysti honum afar vel til að stýra félaginu á þeirri góðu vegferð sem það er á. Reynsla hans mun nýtast KAPP vel til frekari vaxtar og styrkingar á hér heim sem og á alþjóðavettvangi,

Uppbygging KAPP síðasta árið hefur leitt til mikillar stækkunar á öllum starfssviðum félagsins. Starfsmannafjöldi hefur tvöfaldast á einu ári og tekjur aukist í sama hlutfalli. ,,Aukin áhersla hefur verið á erlenda markaði frá því sem áður var, en samhliða því fókus á innlendan heimamarkað. Báðir markaðir hafa sýnt jákvæð viðbrögð við því breiða vöruframboði og þjónustu sem KAPP býður nú upp á. Fyrirtækið hefur unnið markvisst að því að kynna núverandi og nýjum viðskiptavinum þær vörur og þjónustu sem bættust við með nýjum rekstrareiningum, og bendir allt til þess að sú stefna hafi skilað tilætluðum árangri," segir Freyr ennfremur.

Ólafur Karl Sigurðarson, forstjóri KAPP.

Ólafur Karl Sigurðarson, forstjóri KAPP.

„Ég er þakklátur því trausti sem mér er sýnt með því að taka við sem forstjóri félagsins. Freyr og hans fjölskylda hafa byggt upp góðan rekstur og sterkt vörumerki KAPP með mikilli seiglu, framtíðarsýn og dugnaði í gegnum árin. Verandi alinn upp í fjölskyldurekstri sjálfur, er það mér sérstaklega mikill heiður að vera sýnt það mikla traust að fá að leiða KAPP inní næsta vaxtakafla. Við Freyr erum með sömu sýn á áherslur í rekstri og framtíð félagsins, því hlakka ég mikið til þess að takast á við verkefnið með sterku starfsfólki KAPP. Félagið á að baki afar gott rekstrarár þar sem fjölmörg framfaramál og áhugaverðar fjárfestingar hafa markað spor í starfsemina. Það var stórt skref stígið í lok 2024 með því að fara í þær stóru fjárfestingar sem við gerðum. Það er mikil vinna fólgin í því að samþætta rekstur nokkura félaga undir merkjum KAPP en halda á sama tíma sjó innan þeirra rekstrareininga sem við rákum fyrir. Við höfum hér um bil tvöfaldað starfsmannafjöldan síðastliðið ár og veltan vaxið í sama hlutfalli. Næsta ár fer í að byggja ofan á þennan góða grunn og halda áfram að þróast. Ég hlakka til komandi ára með öflugu starfsfólki félagsins og náinni samvinnu við viðskiptavini,” segir Ólafur Karl.

Fleiri fréttir

  • Margeir ráðinn fjármálastjóri KAPP

    Margeir ráðinn fjármálastjóri KAPP

  • KAPP er framúrskarandi fyrirtæki

    KAPP er framúrskarandi fyrirtæki

  • KAPP kaupir Kami Tech Inc. í Seattle

    KAPP kaupir Kami Tech Inc. í Seattle

  • KAPP hlaut umverfisframtak ársins hjá SA

    KAPP hlaut umverfisframtak ársins hjá SA

  • KAPP Skaginn ehf kaupir eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi

    KAPP Skaginn ehf kaupir eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi

  • KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2024

    KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2024

  • Fjör á KAPP básnum á IceFish í Fífunni

    Fjör á KAPP básnum á IceFish í Fífunni

  • Thor Landeldi kaupir GMT frá Innovasea

    Thor Landeldi kaupir GMT frá Innovasea

  • Ólafur Karl ráðinn sem aðstoðarforstjóri KAPP

    Ólafur Karl ráðinn sem aðstoðarforstjóri KAPP

  • KAPP skrifar undir samning við Atlas Premium Seafood

    KAPP skrifar undir samning við Atlas Premium Seafood

  • Saltsprautuvel-RAF-S900-visir-hf

    Vísir hf. fær afhenta nýja saltsprautuvél frá KAPP

  • Ny-Fiskur-CO2-Krapavel-OptimICE

    Ný-Fiskur fær fyrsta eintakið af nýrri CO2 krapavélina frá KAPP