Við hjá KAPP sérhæfum okkur í málmsmíði úr öllum gerðum málma með áherslu á rennismíði og fræsivinnu úr málmum s.s. stál, ryðfrítt stál og ál. Einnig erum við með sérhæfða vinnslu á smíði íhluta úr plasti. Áratuga reynsla.
Sérhæfum okkur í málmfyllingu og slípun, öxlum og pottsuðu ásamt fjölmörgum öðrum verkefnum.
Renniverkstæðið er oft hluti af stærri lausnum fyrir okkar viðskiptavini þegar að kemur að heildarlausnum er tengjast véla-, kæli- eða frystibúnaði. Viðgerðir og/eða sérsmíði.
Vélaverkstæðið okkar sérhæfir sig í vélaviðgerðum m.a á heddum, blokkum, vélum, tjökkum, sveifarásum og gírum. Sjáum um málmásprautun o.fl.
Starfsmenn vélaverkstæðis og renniverkstæði KAPP vinna náið saman að úrlausn flestra verkefna.og er ekkert verk of lítið né of stórt.
Við sjáum um upptekningu á hvers kyns vélum og heddum og gerum við verðtilboð í stærri viðgerðir.
„Þú finnur traust í okkar lausn“ eru einkunnarorð fyrirtækisins í smáu sem stóru.