Umhverfismál

KAPP leggur mikla áherslu á að vera í fararbroddi í umhverfismálum þar sem áherslan er á að þjónusta viðskiptavini í að skipta út kælimiðlum sem eru slæmir fyrir umhverfið og setja inn umverfisvænar lausnir í staðin.

Við sérhæfum okkur í þjónustu við eftirfarandi:

KAPP_minnkadu_kolefnissporid_Lausnin_er_til_Ammoniak_C02_Rafmagn

 

Umhverfisstefnan og framkvæmd hennar skal vera liður í daglegu starfi KAPP ehf. Umhverfisstefnuna á að kynna fyrir starfsfólki, samstarfsaðilum, birgjum og undirverktökum og birta á vef KAPP.is 

Við allar ákvarðanatökur, framkvæmdir, rekstur, innkaup og aðra starfsemi á vegum KAPP skal leitast við að neikvæð áhrif á umhverfi, náttúru, íbúa og viðskiptavini séu í lágmarki. Leggja skal áherslu á vistvæn innkaup á vörum, þjónustu, framkvæmdum og ráðgjöf.

Dregið verði úr hvers kyns sóun verðmæta, myndun úrgangs og stuðlað að endurnýtingu og endurvinnslu.

Umhverfisstefna KAPP byggir á alþjóðlegum samþykktum, íslenskum lögum og reglugerðum. Umhverfisstefnan nær yfir öll svið og deildir KAPP.

KAPP verði leiðandi í umhverfisráðgjöf og innleiðingu á kælimiðlum fyrir sjávarútveg og annan matvælaiðnað.

 

KAPP_umhverfisstefna_hafa_samband