Creditinfo hefur í þrettán ár vottað Framúrskarandi fyrirtæki í íslensku atvinnulífi fyrir góðan og traustan rekstur. Markmið greiningarinnar er að verðlauna þau fyrirtæki sem standa sig vel og stuðla þannig að bættu viðskiptaumhverfi. Framúrskarandi fyrirtæki byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag fjárfesta og hluthafa. Það er því eftirsóknavert að skara fram úr.
KAPP ehf er nú fjórða árið í röð meðal 2% best reknu fyrirtæki á Íslandi.